Sunnudagur, 20 maí 2012
 
 
Óli Páll Geirsson

Óli Páll kennir eftirfarandi fög:

Stærðfræði: Öll skólastig

 

Staðsetning:

Reykjavík

 

 

Menntun:

  • Stundar nú doktorsnám í stærðfræðilegri tölfræði við Háskóla Íslands
  • Stundaði nám í fræðilegri líkindafræði við Göteborgs Universitet í eitt ár.
  • Lauk B.Sc.-prófi í stærðfræði frá Háskóla Íslands 2008.
  • Lauk stúdentsprófi af stærðfræðibraut Verslunarskóla Íslands árið 2005.

Reynsla af kennslu

  • Hóf störf hjá Study.is haustið 2008. Þar hefur hann annast mörg prófnámskeið í eftirfarandi fögum með frábærum árangri:
    • Líkindaaðferðum og tölfræði fyrir verkfræði-og hagfræðinema
    • Tölfræði A og B fyrir viðskiptafræðinema
    • Tölfræði I og II fyrir hagfræðinema
    • Tölulegri greiningu fyrir verkfræði og raunvísindanema
    • Línulegri algebru fyrir verkfræði-, hagfræði og raunvísindanema
    • Stærðfræði I og II fyrir hagfræðinema
  • Hefur kennt dæmatíma í fjölmörgum greinum við Verkfræði- og raunvísindadeild Háskóla Íslands, þar á meðal í þrisvar sinnum í líkindaaðferðum og tölfræði, í stærðfræðigreiningu og í tölulegri greiningu.
  • Kenndi stærðfræði við Iðnskólann í Reykjavík.

Önnur reynsla

  • Hefur töluverða reynslu af stærðfræðilegri forritun í MATLAB og R
  • Starfar sem tölfræðiráðgjafi hjá Tölfræðimiðstöð Háskóla Íslands