Fimmtudagur, 23 feb 2012
 
 

Næstu atburðir

Study.is á facebook

Skoðanakönnun

Hvert er þitt fag?
 
Vantar þig aðstoð við námið?

Við getum hjálpað þér að ná betri árangri. Hjá okkur starfar hópur leiðbeinenda með víðtæka menntun og reynslu sem vilja miðla því sem þeir hafa lært til þeirra sem geta notið góðs af.

Mjög algengt er að nemendur sem lenda í vandræðum vanti örlítið upp á grunninn og gangi þess vegna illa með framhaldið. Það er líka erfitt fyrir kennara að gefa sér tíma til að útskýra efni fyrri áfanga þar sem þeir þurfa að halda sig við efnið. Þá er líka mjög auðvelt að týnast í hópnum.

Við bjóðum upp á bæði fámenn námskeið og einkakennslu, þar sem farið er yfir það efni sem nemendurnir eiga í vandræðum með á þeirra hraða. Þess er gætt að aðeins fáir nemendur séu á hverju námskeiði hjá okkur svo leiðbeinandinn nái góðum tengslum við þá og enginn hverfi inn í fjöldann.

 

 

 

 
Þjónusta í boði

Einkakennsla

einkakennslaEf nemandinn þarf á mikilli aðstoð að halda er einkakennsla yfirleitt besti kosturinn. Nemandinn fær alla þá athygli sem hann þarf frá kennaranum án utanaðkomandi truflunar. Kennarar taka yfirleitt á móti nemendum í heimahúsum, í skólum þar sem þeir stunda sjálfir nám eða á skrifstofum sem þeir hafa til afnota. Einnig er hægt að fá kennara í heimahús ef óskað er eftir því.

Ef lítill hópur nemenda á í erfiðleikum með sama fag er leigð kennslustofa í Menntaskólanum við Sund undir kennsluna. Ef fjöldi nemenda í hópnum fer mikið yfir 6 manns er þó mun æskilegra að skipurleggja námskeið fyrir hópinn þar sem farið er yfir valið efni. Oft þarf kennarinn að undirbúa sig umtalsvert fyrir hóptímana og því er gott að hafa samband með smá fyrirvara. Ef nemendur vilja heldur fá kennaran uppí skóla til sín er hægt að koma því í kring.

Hægt er að panta einkakennslu og hópkennslu hérna.

 
Námskeið

namskeid

Námskeið fyrir menntaskólanema

Boðið er uppá námskeið í stærðfræði og dönsku fyrir nemendur sem eru að hefja nám á menntaskólastigi. Á þessum námskeiðum er farið vel yfir þann grunn sem mikilvægt er að nemendur hafi á fyrsta ári í menntaskóla.

Nánari upplýsingar um þessi námskeið má finna hér.

 

Námskeið fyrir foreldra

Boðið er uppá námskeið í stærðfræði og dönsku fyrir foreldra sem hafa áhuga á að aðstoða börnin sín við námið. Á þessum námskeiðum er ryfjað upp efni sem kennt er á seinni árum í grunnskólum og á fyrsta ári í menntaskólum auk þess sem kennarar gefa foreldrum góð ráð varðandi kennslu.

Nánari upplýsingar um þessi námskeið má finna hér.

 

Námskeið fyrir háskólanema

Til stendur að halda námskeið í tölfræði fyrir nemendur í sálfræði ásamt því að það verða haldin námskeið í lífefnafræði fyrir nemendur á fyrsta ári í hjúkrunarfræði á komandi skólaári. Nánari upplýsingar um þessi námskeið verða byrtar fljótlega.
 

Prófnámskeið

Í lok hverrar annar eru haldnar prófbúðir í ýmsum greinum og fer þeim námskeiðum ört fjölgandi. Í lok vorannar árið 2010 voru haldin námskeið fyrir nemendur í hjúkrunarfræðideild, sálfræðideild og verkfræðideild Háskóla Íslands og nemendur í verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Til stendur að fjölga þessum námskeiðum á næstu skólaárum ásamt því að stefnt er að því að halda prófbúðir fyrir nemendur í menntaskólum.
 

 
Prófarkalestur
skyrslaÞegar nemendur þurfa að skila stórum ritgerðum, skýrslum eða umsóknum í skóla getur skipt sköpum ef vanur aðili les yfir efnið og kemur með ábendingar um hvernig megi lagfæra orðalag og stafsetningu. Boðið er uppá prófarkalestur á íslensku, ensku, dönsku og frönsku.