Sunnudagur, 20 maí 2012
 
 
Fréttir
Seinkun á námskeiðum
Ákveðið hefur verið að fresta námskeiðum í stærðfræði og dönsku fyrir annars vegar foreldra og hins vegar fyrir nemendur sem eru að hefja nám í menntaskóla fram yfir verslunarmannahelgi. Námskeiðin munu hefjast 9. og 10. ágúst en upphaflega stóð til að hefja námskeiðin 19. og 20. júlí.
 
Samstarf við Hraðlestrarskólann

Study.is og Hraðlestrarskólinn hafa nú tekið höndum saman að auðvelda þér námið enn frekar. Hraðlestrarskólinn hefur haldið hraðlestrarnámskeið á Íslandi frá 1978 og býður upp á 6 vikna námskeið, 3 vikna hraðnámskeið og helgarnámskeið í hraðlestri. Þeir eru einnig að bjóða upp á námskeið um hugarkortanotkun við glósurgerð og glósutækni á tölvum í námskeiðinu. Nemendur sem sækja námskeið hjá Study.is fá tilboð inn á námskeið Hraðlestrarskólans en dagskrá námskeiða má sjá á vefsíðu Hraðlestrarskólanns.

 
Bjóðum Auði Stellu velkomna til starfa
Study.is býður Auði Stellu Þórðardóttur velkomna til starfa. Auður Stella hefur unnið mikið með nemendum á efri árum í grunnskólum og á sínum fyrstu árum í menntaskólum og er án efa reynslumesti kennari sem study.is hefur upp á að bjóða.
 
Samstarf með Plan X
Nú hefur verið samið við Mörthu Árnadóttur, aðalleiðbeinanda Plan X. Martha mun halda sérsniðin námskeið fyrir nemendur í markmiða- og árangursstjórnun fyrir study.is. Þessi námskeið eru tilvalin fyrir þá sem vilja ná betri árangri í náminu.
 
Kynningar hafnar í menntaskólunum
Nú eru kynningar á starfsemi study.is hafnar í menntaskólum höfuðborgarsvæðisins. Í gær, miðvikudaginn 9. september var farið ásamt Svavari Knúti, tónlistarmanni, í Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Þar voru haldnir stuttir tónleikar auk þess sem Svavar reitti af sér brandarana við frábærar undirtektir nemenda. Næst verður farið í Flensborgarskólann í Hafnarfirði en stefnan er sett þangað þriðjudaginn 15. september.
 
Vefsíðan tekin í notkun
Í dag, mánudaginn 10. ágúst, var vefsíðan study.is tekin í notkun. Á síðunni má sjá þau námskeið sem boðið er upp á en opnað verður fyrir skráningu um miðjan ágúst. Í framtíðinni er stefnt á að koma upp öflugri stuðningssíðu sem mun standa nemendum til boða án endurgjalds.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL